Gluggamálverk

Ég tek að mér að mála gluggamálverk en þú spyrð kannski, hvað er það?

Já það er bara nákvæmlega eins og það hljómar, málverk á glugga. Þau eru máluð með akrýlmálningu og/eða akrýlpennum og þrífst auðveldlega af með sápuvatni og glersköfu. Þau endast utandyra á rúðum í nokkrar vikur eða mánuði og eru frábær leið til að breyta til og lífga upp á rýmið eða verslunina. Hægt er að mála skreytingar tengdum árstíðinni eða helgidögum, svosem jól, páskar, þjóðhátíðardagurinn o.s.frv. eða tengdum vöruherferðum, útsölum eða öðru sem tengist versluninni.

Ég tek við bókunum frá fyrirtækjum sem og einstaklingum og hanna hvert verk sjálf í samráði við kúnnan.

Til að bóka eða athuga með verð er best að senda á mig á margretsolr@gmail.com eða á instagram á margretsol.art.

Best er að fá myndir af glugganum sem um ræðir ásamt hugmyndum af því hvað þú vilt fá á gluggann. Verð miðast við stærð og flækjustig málverksins en einnig er samið um það í bókunarferlinu.

Bóka / Fá Tilboð

Til að bóka eða fá tilboð í verk er best að senda annaðhvort tölvupóst á margretsolr@gmail.com, skilaboð á Instagram @margretsol.art eða fylla út formið á eftirfarandi hlekk:

Hafa samband