Vegglist

Ég tek að mér að mála vegglist (murals) hvort sem er á inni eða útiveggi. Vegglist eru málverk sem eru máluð beint á vegginn og geta verið allt frá nokkrum sentimetrum yfir í risa listaverk utaná byggingar. 

Vegglist er frábær leið til að lífga upp á rýmið hvort sem það er heima fyrir eða á vinnustaðnum. Hvert verk er hannað af mér og unnið í samráði við kúnnann þar sem við vinnum saman við að finna bestu útfærsluna. 

Til að bóka eða athuga með verð er best að senda á mig á margretsolr@gmail.com eða á instagram á margretsol.art.

Best er að fá myndir af veggnum sem um ræðir ásamt hugmyndum af því hvað þú vilt fá á vegginn. Verð miðast við stærð og flækjustig málverksins en einnig er samið um það í bókunarferlinu.

Bóka / Fá Tilboð

Til að bóka eða fá tilboð í verk er best að senda annaðhvort tölvupóst á margretsolr@gmail.com, skilaboð á Instagram @margretsol.art eða fylla út formið á eftirfarandi hlekk:

Hafa samband