UM
Margrét Sól (f. 1996), er sjálfmenntuð myndlistarkona, fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er með meistaragráðu í Heilbrigðisverkfræði og hefur starfað sem slíkur þar til nýverið þegar hún hætti í þeirri vinnu til að elta drauminn og sinna listferlinum.
Hún hefur alltaf verið mikill föndrari og hefur gaman að því að skapa fallega hluti sem gleðja aðra. Hún málar bæði olíu og akrýlmálverk auk þess sem hún málar vegglistaverk bæði innan og utandyra. Hún er stöðugt að prófa sig áfram með stíl og með mismunandi miðla og hefur mjög gaman af allskonar handverki eins og brennipennalist, grafa í gler/spegla, mála á föt, prjóna og sauma svo fátt sé nefnt.
Markmiðið hennar er að glæða heiminn lit og skapa list sem fólk getur tengt við á einn eða annan hátt.